Hringrás steintegunda
Hringrás steintegunda myndast þannig: Storkuberg myndast á yfirborði við kólnun bráðinnar bergkviku. Ef bergkvikan storknar neðanjarðar myndast stórkristallað djúpberg. Myndbreytt berg verður til við ummyndun ólíkra bertegunda af völdum hita og þrýstings. Setberg er berg afraksturs veðrunar og rofs en þau öfl hafa unnið á og flutt efnið þangað sem það sest í lög og þjappast með tímanum.
|
StorkubergStorkuberg er bergtegund, sem myndast þegar bergkvika, sem á upptök í möttli jarðar, storknar. Storkuberg er algengasta bergtegundin á jarðskorpunni, einkum á hafsbotninum þar sem stöðugt flæðir upp kvika á flekaskilum.
|
Myndbreytt bergEf storkuberg eða setberg verður fyrir áhrifum af miklum hita eða þrýstingi breytist gerð þess og það verður að myndbreyttu bergi.
|
SetbergSetberg er berg sem verður til úr bergmylsnu úr bergi sem veðrun og rof hefur unnið á og flutt, oft langar leiðir frá upprunastað að sjónum þar sem bergmylsnan, bæði mjög fín og gróf sest til í lög. Þessi lög þjappast svo með tímanum og mynda setberg.
|