Myndbreytt berg verður til við umkristöllun storku- og setbergs djúpt í jörðu, bergið verður fyrir áhrifum af miklum hita eða þrýstingi og þá breytast steintegundirnar sem voru upprunalega í því og aðrar myndast í staðin. Dæmi um myndbreytingu er þegar kalksteinn ummyndast í marmara og granít í gneis. Þetta ummyndaða berg er að finna hátt í fjöllum á yfirborði jarðar og er ástæðan fyrir því að myndbreytt berg er ofan jarðar sú að plötuhreyfingar hafa ýtt því upp með samreki.
Það er ekki hægt að finna eiginlegt myndbreytt berg á Íslandi nema eins og fyrir vestan liggur einn granít hnullungur en hann kom þangað á seinustu ísöld með jöklinum frá Grænlandi.